Kind Knitting

Erika - peysan

Tilboðsverð Verð 650 kr Fullt verð 950 kr

VSK innifalinn. Sendingarkostnaður reiknast ef við á í pöntunarferli.

Erika peysan er samvinnuverkefni okkar Þórunnar Ívars, en hana langaði í sæta byrjendavæna peysu á snúlluna sína hana Eriku. Þetta er úkoman.

Erika er prjónuð slétt ofan frá og niður, fyrst fram og til baka og svo í hring.
Peysan er með lítið op aftan í hálsmálinu og bundin með slaufu.
Pífa er í V að framan en einfalt er að sleppa henni.

Stærðir: 6-12 mán, 1, 2, 3, 4, 5, 6-7 og 8-10 ára 

Yfirvídd/ummál:  59, 61, 63, 65, 66, 70, 72, 75 cm

Garn: Dale Lerke 150, 200, 250, 300, 350, 350, 400-450, 450-500g

Einnig má nota hvaða annað garn sem er, sem passar prjónfestunni. Athugið þó að magnið getur breyst ef annað garn er notað.

Prjónfesta: 22 lykkjur á 10 cm í sléttu prjóni (Prjónar nr. 4)

Prjónar:

  • Hringprjón nr. 4, 40 og 60/80 cm
  • Sokkaprjóna nr. 3,5
  • Sokkaprjóna nr. 4

Fleiri myndir hér fyrir neðan