Soft merino
Innihald: 100 % extra fín merinoull
Þyngd og magn: 50 grömm = ca 187 metrar
Prjónfesta 28 lykkjur í sléttu prjóni á prjóna nr. 3 = 10 cm.
Uppruni: Dale Natural Lanolin Wool er framleitt á Ítalíu
SOFT MERINO er spunnið úr 100 % extra fínni, náttúrulegri merinoull. Garnið er ekki superwashmeðhöndlað, í staðinn eru varðveittir upprunalegu eiginleikar ullarinnar. Það þýðir að hún býr yfir eins miklum teygjanleika og einangrunareiginleikum og mögulegt er, líka þegar flíkin er blaut. Þannig fær maður einstakt og umhverfisvænt garn án nokkurra aukefna eins og plasts.
SOFT MERINO er fallegt í fínni flíkur og fyrir þig sem vilt sérstaklega mjúkt garn sem gefur fallegan strúktrúr.
Mælt er með garninu í allskyns flíkur og það hentar í allskyns prjón allt frá klassísku gatamunstri í strúkúrmunstur og tvíbandaprjón, eins hentar vel að hekla úr því. Vegna þeirra einstaklega fínu ullartrefja sem notaðar eru í garnið verður það einstaklega mjúkt og hentar jafnt í ungbarna, barna og fullorðins flíkur og stingur ekki hót.
SOFT MERINO er RWS vottað . Það tryggir að ullin komi frá býlum þar sem er sjálfbær ræktun af jarðvegi og hugað að dýravelferð, en þessi vottun bannar stranglega að "mulesing" (þ.e. þegar dindillinn er skorinn af merinokindum). RSW tryggir sjálfbæra framleiðslu frá búli til tilbúinnar vöru.
Mundu að þú getur notað SOFT MERINO, Dale Baby Ull og Lille Lerke í sömu uppskriftirnar á þess að þurfa að umreikna.
• Ullarþvottur 30 °C
• Þvoið á röngunni
• Notið þvottaefni fyrir ull/silki
• Notið ekki mýkingarefni
• Leggið til þerris
Það eru því miður engar vörur í þessum flokki