Kind Knitting

Old school - Hneppt símunstruð peysa

Tilboðsverð Verð 650 kr Fullt verð 950 kr

VSK innifalinn. Sendingarkostnaður reiknast ef við á í pöntunarferli.

Um peysuna:

Old School er símynstruð, prjónuð slétt, í hring ofan frá og niður. Eftir á er peysan klippt upp og prjónaður listi.

Til að prjóna Old School þarf fyrir utan prjóna og garn bara nokkur prjónamerki, stoppunál og 5-12 tölur til að klára verkið. Gæti ekki verið einfaldara.

Stærðir: 6-12 mán, 1, 2, 3, 4, 5, 6-7, 8-10 ára

Garn: Ég notaði Lanolin frá Dale garn sem fæst hjá Prjónaklúbbnum.

Litur 1: 100, 100, 100, 150, 200, 200, 250, 250g 

Litur 2: 100, 100, 100, 150, 150, 150, 150, 200g

Eins mæli ég með Lerke eða Zenta fra Permin 

Prjónfesta: 22 lykkjur á 10 cm í sléttu prjóni.

Að mati prufuprjónara er þetta í erfiðleikastigi 3,5 (af 5 mögulegum, þar sem 1 er afar auðvelt, og 5 er mjög erfitt). 
Sú einkunn kemur til af þeirri einbeitingu sem þörf er á þegar mynstrið er lagt niður í upphafi, auk þess sem ekki allir eru vanir því að prjóna peysur ofanfrá og auka út í berustykki í stað þess að taka úr eins og venjan er.

-------------------------------------------------------

Um húfuna:

Húfan er prjónuð í hring, á sokkapróna eða langan hringprjón (magic loop). Gert er ráð fyrir eyrum í minnstu stærðunum

Stærðir: 6 - 12 mán, 1 - 3 ára, 2 - 4 ára, 4 - 7 ára og  8 - 12 ára

Garn: Ég notaði Lanolin frá Dale garn sem fæst hjá Prjónaklúbbnum. (

Magn er gefið upp miðað við að prjónað sé bæði húfa og kragi.)

Litur 1: 100, 100, 100, 150, 150 g

Litur 2: 50, 50, 50 150, 150

Eins mæli ég með Lerke eða Zenta fra Permin 

Prjónfesta: 22 lykkjur á 10 cm í sléttu prjóni