TÍGULL - Heilgalli
Tilboðsverð
Verð
1.250 kr
Fullt verð
1.250 kr
Um gallann:
TÍGULL er hlýr og góður galli sem hentar vel í vagninn, útileguna og bara í allt sem
þér og barninu dettur í hug. Hann er prjónaður ofan frá og niður. Í upphafi er hann
prjónaður fram og til baka og svo er tengt í hring. Mynstur er á ermunum og niður hliðarnar á gallanum.
Stærðir: Newborn, 0-3 mán, 3-6 mán, 6-12 mán, 1 ára, 2 ára, 4 ára
Garn: Dale Lanolin.
200gr, 200gr, 250gr, 300, 350gr, 400gr, 450gr
Athugið að magnið getur breyst ef annað garn er notað.
Prjónar:
Sokkaprjónar nr 4
Addi Trio prjónar nr 4 (val)
Hringprjónn nr 4 40cm og 60cm
Hringprjónn nr 3 60cm fyrir hnappalista
Prjónfesta: 22 lykkjur á 10 cm í sléttu prjóni
Tígull er eftir Söru Spencer Heimisdóttur og er í umboðssölu hjá Prjónaklúbbnum (Pk) og er því ekki á vegum eða á ábyrgð fyrirtækisins. Höfundur hennar hefur falið fyrirtækinu að annast sölu hennar með samningi þar að lútandi, en í honum stendur m.a. „[höfundur] má einungis fela Pk sölu á uppskriftum þeim sem hún/hann gefur út sem sitt eigið hugverk. Pk ber enga ábyrgð komi í ljós misbrestur þar að lútandi s.s. ritstuldur eða annað áþekkt.“