Selfoss
Tilboðsverð
Verð
950 kr
Fullt verð
950 kr
Um peysuna:
Selfoss er prjónuð slétt, í hring, ofan frá og niður, með munstur í berustykkinu. Selfoss er einföld og látlaus með klassísku munstri.
Til að prjóna Selfoss þarf fyrir utan prjóna og garn bara nokkur prjónamerki og stoppunál.
Stærðir: 1, 2, 3, 4, 5, 6-7, 8-10 ára
Garn: Ég notaði Zenta by Permin sem fæst hjá Prjónaklúbbnum (50g=180m).
Litur 1: 100, 100, 150, 150, 150, 200, 200-250g
Litur 2: 50g
Eins mæli ég með Lerke eða Lanolin frá Dale
Prjónastærð: 3,5 í stroff og 4 í munstur og slétt prjón.
Prjónfesta: 22 lykkjur á 10 cm í sléttu prjóni.
Að mati prufuprjónara er þetta í erfiðleikastigi 2,5 (af 5 mögulegum, þar sem 1 er afar auðvelt, og 5 er mjög erfitt).
Sú einkunn kemur til af þeirri einbeitingu sem þörf er við mynsturprjónið, auk þess sem ekki allir eru vanir því að prjóna peysur ofanfrá og auka út í berustykki í stað þess að taka úr eins og venjan er.