Mjöll - húfusett
Tilboðsverð
Verð
950 kr
Fullt verð
950 kr
Minnstu stærðirnar af húfunni eru með eyrum og böndum. Stærri stærðirnar eru ekki með eyrum. Útaukningin á eyrunum er fyrir miðjum eyrum. Eyrun eru prjónuð fram og til baka , slétt á réttunni og brugðið á röngunni. Húfan sjálf er prjónuð slétt í hring.
Anja eyrnaband er mjög einfalt og fljótprjónað. Það er prjónað slétt í hring ásamt stroffi. Að lokum er það dregið saman framaná.
Húfan:
Stærðir: Nýfædd, 0-3 mán, 3-6 mán, 6-12 mán, 1-2 ára
Garn: Dale Lanolin eða Dale Lerke.
50-100g gr. í allar stærðir
Athugið að magnið getur breyst ef annað garn er notað.
Prjónar:
Sokkaprjónar 4.
Addi Trio prjónar nr. 4 (val)
40 cm hringprjónn nr. 4
Prjónfesta: 22 lykkjur á 10 cm í sléttu prjóni
Vettlingar:
Stærðir: 0-6 mán, 6-12 mán, 1-2 ára.
Garn: Dale Lanolin.
100-100g gr. í allar stærðir
Athugið að magnið getur breyst ef annað garn er notað.
Prjónar:
Sokkaprjónar 4.
Addi Trio prjónar nr. 4 (val)
Prjónfesta: 22 lykkjur á 10 cm í sléttu prjóni
Sokkarr:
Stærðir: 0-6 mán, 6-12 mán, 1-2 ára.
Garn: Dale Lanolin.
100-100g gr. í allar stærðir
Athugið að magnið getur breyst ef annað garn er notað.
Prjónar:
Sokkaprjónar 4.
Addi Trio prjónar nr. 4 (val)
Prjónfesta: 22 lykkjur á 10 cm í sléttu prjóni
Mjöll er eftir Söru Spencer Heimisdóttur og er í umboðssölu hjá Prjónaklúbbnum (Pk) og er því ekki á vegum eða á ábyrgð fyrirtækisins. Höfundur hennar hefur falið fyrirtækinu að annast sölu hennar með samningi þar að lútandi, en í honum stendur m.a. „[höfundur] má einungis fela Pk sölu á uppskriftum þeim sem hún/hann gefur út sem sitt eigið hugverk. Pk ber enga ábyrgð komi í ljós misbrestur þar að lútandi s.s. ritstuldur eða annað áþekkt.“