Kind Knitting
Brim - Fullorðins peysa
Tilboðsverð
Verð
760 kr
Fullt verð
950 kr
VSK innifalinn.
Sendingarkostnaður reiknast ef við á í pöntunarferli.
Um peysuna:
Peysan Alda hitti greinilega í mark og um leið var mikið spurt um fullorðins útgáfu. Þessi er gróf, unisex, og hægt að hafa með eða án rúllukraga.
Brim er prjónuð slétt, í hring ofanfrá og niður. Berustykkið er útprjónað með svokölluðu smock prjóni
Stærðir: XS-2XL
Garn: Úlfur frá Kind garn, 450, 500, 500, 600, 700, 800 gr.
Prjónfesta: 15 lykkjur á 10 cm í sléttu prjóni.
Að mati prufuprjónara er þetta í erfiðleikastigi 4 (af 5 mögulegum, þar sem 1 er afar auðvelt, og 5 er mjög erfitt).
Sú einkunn kemur til af þeirri einbeitingu sem þörf er á þegar mynstrið er prjónað.