Júníana litla - Ungbarnapoki
Tilboðsverð
Verð
650 kr
Fullt verð
650 kr
Um húfuna:
Ég elska að taka gömul klassísk munstur og breyta, bæta og útfæra á minn hátt. Í þessa línu valdi ég einmitt að gera það, en úrtakan var viss áskorun og þurfti margar tilraunir til að fullkomna hana.
Pokinn er prjónaður í hring.
Stærðir: ca. 42-46 cm í ummál og 36 cm langur (hægt að gera styttri).
Garn: Dale Lerke 120gr.
Einnig má nota hvaða annað garn sem er, sem passar prjónfestunni. Athugið þó að magnið getur breyst ef annað garn er notað.
Prjónfesta: 22 lykkjur á 10 cm í sléttu prjóni.
Að mati prufuprjónara er þetta í erfiðleikastigi 3 (af 5 mögulegum, þar sem 1 er afar auðvelt, og 5 er mjög erfitt).
Sú einkun kemur til af þeirri einbeitingu sem þörf er á þegar munstrið er sett niður og úrtakan prjónuð.