Kind Knitting

Bulky Júníana - Húfa

Tilboðsverð Verð 350 kr Fullt verð 650 kr

VSK innifalinn. Sendingarkostnaður reiknast ef við á í pöntunarferli.

Ég elska að taka gömul klassísk munstur og breyta, bæta og útfæra á minn hátt. Í þessa línu valdi ég einmitt að gera það, en úrtakan var viss áskorun og þurfti margar tilraunir til að fullkomna hana.

Húfan er prjónuð í hring, á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón nr. 4 og 5.

Með uppskriftinni eru leiðbeiningar um kraga líka.

Stærðir: 1-3 ára, 2-4 ára, 5-7 ára og 8-12 ára.
Prjónið er mjög teygjanlegt því getur stærsta húfan passar á fullorðinn ef bara hún er lengd aðeins.

Garn: Úlfur frá Kind garn  húfa og kragi: 100, 100, 150, 150g 
Einnig má nota hvaða annað garn sem er, sem passar prjónfestunni. Athugið þó að magnið getur breyst ef annað garn er notað.

Prjónfesta: 17 lykkjur á 10 cm í sléttu prjóni.

Að mati prufuprjónara er þetta í erfiðleikastigi 3 (af 5 mögulegum, þar sem 1 er afar auðvelt, og 5 er mjög erfitt). 
Sú einkun kemur til af þeirri einbeitingu sem þörf er á þegar munstrið er sett niður og úrtakan prjónuð.