Sspencer knits

TÍGULL - húfa

Tilboðsverð Verð 650 kr Fullt verð 650 kr

VSK innifalinn. Sendingarkostnaður reiknast ef við á í pöntunarferli.

Um húfuna:

TÍGULL húfa er partur af nýju línunni minni. Hlý og góð húfa sem allir elska.
Hún er einstaklegafljót prjónuð og gaman er að prjóna hana því mynstrið er svo skemmtilegt !

Stærðir: 1 árs, 2 ára, 4 ára, 6 ára, 8 ára,10 ára

Garn: Dale Lanolin eða sambærilegt. 
50 - 100 gr í allar stærðir

Athugið að magnið getur breyst ef annað garn er notað.

Prjónar:
Sokkaprjónar nr 4
Addi Trioprjónar nr 4 (val)
Hringprjónn nr 4  -  40 cm

Prjónfesta: 22 lykkjur á 10 cm í sléttu prjóni

Annað sem gott er að hafa við höndina:
Prjónamerki
Nál
Skæri
Heklunál til að hjálpa við poppkorns lykkjuna.

TÍGULL er eftir Söru Spencer Heimisdóttur og er í umboðssölu hjá Prjónaklúbbnum (Pk) og er því ekki á vegum eða á ábyrgð fyrirtækisins. Höfundur hennar hefur falið fyrirtækinu að annast sölu hennar með samningi þar að lútandi, en í honum stendur m.a. „[höfundur]  má einungis fela Pk sölu á uppskriftum þeim sem hún/hann  gefur út sem sitt eigið hugverk. Pk ber enga ábyrgð komi í ljós misbrestur þar að lútandi s.s. ritstuldur eða annað áþekkt.“

Customer Reviews

Be the first to write a review
0%
(0)
0%
(0)
0%
(0)
0%
(0)
0%
(0)