TÍGULL - peysa
Tilboðsverð
Verð
950 kr
Fullt verð
950 kr
Um peysuna:
TÍGULL er hlý og góð peysa sem er með rúllukraga og er hún prjónuð ofan frá og niður, prjónuð í hring með mynstri að framan en slétt að aftan, einnig eru ermarnar prjónaðar slétt.
Stærðir: 1 árs, 2 ára, 4 ára, 6 ára, 8 ára,10 ára
Garn: Dale Lanolin eða sambærilegt.
200 gr, 250 gr, 300 gr, 350 gr, 400 gr, 450 gr
Athugið að magnið getur breyst ef annað garn er notað.
Prjónar:
Sokkaprjónar nr 4
Addi Trioprjónar nr 4 (val)
Hringprjónn nr 4 - 40 og 60cm
Prjónfesta: 22 lykkjur á 10 cm í sléttu prjóni
Annað sem gott er að hafa við höndina:
Prjónamerki
Nál
Skæri
Heklunál til að hjálpa við poppkorns lykkjuna.
TÍGULL er eftir Söru Spencer Heimisdóttur og er í umboðssölu hjá Prjónaklúbbnum (Pk) og er því ekki á vegum eða á ábyrgð fyrirtækisins. Höfundur hennar hefur falið fyrirtækinu að annast sölu hennar með samningi þar að lútandi, en í honum stendur m.a. „[höfundur] má einungis fela Pk sölu á uppskriftum þeim sem hún/hann gefur út sem sitt eigið hugverk. Pk ber enga ábyrgð komi í ljós misbrestur þar að lútandi s.s. ritstuldur eða annað áþekkt.“