Kind Knitting

Rúnni Júl - "Með grátt í vöngum"

Tilboðsverð Verð 650 kr Fullt verð 950 kr

VSK innifalinn. Sendingarkostnaður reiknast ef við á í pöntunarferli.

Um peysuna:

Barna peysan fékk viðtökur sem ég átti alls ekki von á, alveg hreint ótrúlegar. Strax var byrjað að spyrja eftir fullorðins peysu og ég fitjaði upp. Það er þó ekki alveg þrautarlaust að gera uppskrift sem er klæðileg í svo mörgum stærðum, en það tókst, loksins. Fullorðins Rúnni Júl er hugsaður fyrir bæði kynin, plain á herra og með boyfriend sniði á kvenkynið, frekar stór og víð.

Rúnni Júl er prjónaður ofan frá og niður með klassísku bubbluprjóni í framstykki og skemmtilegum smáatriðum sem setja punktinn yfir i-ið

Stærðir: XXS-3XL

Garn: 450, 450, 500, 550, 600, 700,  750, 800 gr. af Úlfi frá Kind garn. Einnig má nota sambærilegt svo sem Léttlopa eða annað garn með svipaða prjónfestu en hafa þarf í huga að garnmagn er miðað við 90m/50g.

Einnig má nota hvaða annað garn sem er, sem passar prjónfestunni. Athugið þó að magnið getur breyst ef annað garn er notað.

Prjónfesta: 17 lykkjur á 10 cm í sléttu prjóni.

Að mati prufuprjónara er þetta í erfiðleikastigi 3,5 (af 5 mögulegum, þar sem 1 er afar auðvelt, og 5 er mjög erfitt). 
Sú einkunn kemur til af þeirri einbeitingu sem þörf er á þegar mynstrið er lagt niður í upphafi, auk þess sem ekki allir eru vanir því að prjóna peysur ofanfrá og auka út í berustykki í stað þess að taka úr eins og venjan er.

Customer Reviews

Based on 1 review
100%
(1)
0%
(0)
0%
(0)
0%
(0)
0%
(0)
E
Edda Jensdóttir
Rúnni Júl

Ætla að prjóna hana á minn með grátt í vöngum 🤗