Kanínukrútt - Heilgalli & hjálmhúfa
Tilboðsverð
Verð
1.520 kr
Fullt verð
1.520 kr
Um gallann:
Kanínukrútt er hlýtt og gott sett sem hentar vel í vagninn, útileguna og bara í allt sem þér og barninu dettur í hug.
Gallinn er prjónaður fram og til baka, slétt á réttunni og brugðið á röngunni.
Húfan er prjónuð í hring.
Stærðir: Newborn, 0-3 mán, 3-6 mán, 6-12 mán, 1 ára, 2 ára
Garn: Dale Lanolin.
200g, 200g, 250g, 300g, 350g, 400g í gallann.
50-100g í húfuna.
Athugið að magnið getur breyst ef annað garn er notað.
Prjónar f. gallann:
Sokkaprjónar nr 4
Addi Trio prjónar nr 4 (val)
Hringprjónn nr 4 40cm og 60cm
Hringprjónn nr 3 60cm fyrir hnappalista
Prjónar f. húfuna:
Sokkaprjónar nr. 3 & 4
Addi Trio prjónar nr. 4 (val)
Hringprjónn nr. 4, 40cm
Prjónfesta: 22 lykkjur á 10 cm í sléttu prjóni
Það sem þarf aukalega:
Prjónamerki
Nál
Skæri
Heklunál til að hjálpa við poppkorns lykkjuna.
Uppskriftirnar eru eftir Söru Spencer Heimisdóttur og er í umboðssölu hjá Prjónaklúbbnum (Pk) og er því ekki á vegum eða á ábyrgð fyrirtækisins. Höfundur hennar hefur falið fyrirtækinu að annast sölu hennar með samningi þar að lútandi, en í honum stendur m.a. „[höfundur] má einungis fela Pk sölu á uppskriftum þeim sem hún/hann gefur út sem sitt eigið hugverk. Pk ber enga ábyrgð komi í ljós misbrestur þar að lútandi s.s. ritstuldur eða annað áþekkt.“