Lene Holme Samsø

Prjónað af ást

Tilboðsverð Verð 4.290 kr Fullt verð 4.290 kr

VSK innifalinn. Sendingarkostnaður reiknast ef við á í pöntunarferli.
Höfundur: Lene Holme Sansøe

 

Í handprjónaðar flíkur handa börnum er lögð mikil ást og umhyggja og fátt er jafn gaman að gefa.

Prjónað af ást inniheldur sjötíu uppskriftir að flíkum og fylgihlutum handa börnum, frá fæðingu upp að 8–10 ára aldri. Höfundurinn sækir innblástur í norræn hannyrðablöð og -bækur frá því um miðja síðustu öld en hefur lagað uppskriftirnar að þörfum nútímans.

Verkefnin í bókinni eru fjölbreytt, stór og smá; húfur, hálstau og ennisbönd ásamt stærri flíkum eins og peysum, jökkum, kjólum, buxum og öðrum mjúkum og þægilegum fatnaði.

Lene Holme Samsøe er þekktur danskur hönnuður sem hefur komið að útgáfu fjölmargra prjónabóka.

Ásdís Sigurgestsdóttir og Guðrún B. Þórisdóttir þýddu.

Smellið hér til að sjá skjal með leiðréttingum á bls. 42