Vinkonusettið - Ungbarnapeysa hliðarhneppt
Tilboðsverð
Verð
950 kr
Fullt verð
950 kr
Stundum langar mann bara til að gefa vinkonum sínum eitthvað fallegt.
Samstarfskona mín á vinkonu sem er af erlendu bergi brotin. Hún átti von á barni snemma í vor en á enga ættingja hér á landi; engar ömmur, systur eða frænkur sem geta prjónað fyrir barnið. Þetta fannst vinkonunni ótækt; öll lítil börn þurfa að fá handprjónuð föt að hennar mati, svo hún bað mig um að bjarga málunum.
Því varð vinkonusettið til.
Í þessu ungbarnasetti eru romper, peysa, buxur og húfa. Peysan er til í tvenns konar útgáfu, hneppt eftir miðju og hneppt í vinstri hlið.
Þessi peysa er prjónuð ofan frá og niður, fram og tilbaka. Munstur er á framstykki en að öðru leyti er hún með sléttu prjóni. Tölulisti er prjónaður jafnóðum.
STÆRÐIR
Nýburar / 0-3 mán / 3-6 mán / 6-9 mán
UMMÁL
46, 47, 49, 51 cm
GARN
Dale Lille lerke eða það garn sem passar prjónafestunni.
100, 100, 100, 150 gr
Athugið að ef annað garn er valið getur það haft áhrif á stærð flíkurinnar auk þess sem magnið gæti breyst.
PRJÓNAR
Hring- og sokkaprjónar # 2,5 og 3,0
PRJÓNAFESTA Í SLÉTTU PRJÓNI
26 L = 10 cm
ANNAÐ SEM ÞARF AÐ HAFA VIÐ HÖNDINA
8-12 prjónamerki
5-8 tölur
Skæri, nál
Að mati prufuprjónara er þetta í erfiðleikastigi 3 (af 5 mögulegum, þar sem 1 er afar auðvelt, og 5 er mjög erfitt).