Tildra - barnapeysa
Tilboðsverð
Verð
950 kr
Fullt verð
950 kr
Tildra er prjónuð ofan frá og niður, sem þýðir að byrjað er að fitja upp á hálsmáli. Peysan er heilmunstruð. Mismunandi prjónfesta er á stærðum, það er til þess að stökkið á milli stærða sé ekki jafn stórt. Þannig eru stærðir XS, M, XL og XXXL með prjónfestu 17/10 á 5 mm prjóna og stærðir S, L, XXL og XXXXL með prjónfestu 16/10 á 5.5 mm prjóna, hérna þurfa samt sumir að nota fínni prjóna til þess að ná þéttri prjónfestu.
Stærðir:
6–12mánaða,(1–2ára),2–3ára,(4–5ára),6ára,(8–10ára),12ára.
Ummál:
59, (63), 70, (75), 82, (88), 94 cm.
Prjónfesta:
17/10 á 4,5/5 mm. og 16/10 á 5/5.5 mm prjóna
Prjónar:
Sokkaprjónar 4, 4.5, 5 og 5.5 mm, stuttur hringprjónn (40 cm) 4, 4.5, 5 og 5,5 mm og 5.5 mm. Langur hringprjónn (80 cm) 4, 4.5, 5 og 5.5 mm.
Garn: Merino Kindknitting eða Dale Merino 22 og fylgiþráður Holst Titicaca eða Filcolana Alva.
Kind Merino eða Merino 22: 100, (150), 200, (250), 250, (300), 350 g.
Holst Titicaca eða Filcolana Alva: 50, (100), 100, (100), 125, (125), 150 g.
Þessi uppskrift er í umboðssölu hjá Prjónaklúbbnum (Pk) og er því ekki á vegum eða á ábyrgð fyrirtækisins. Höfundur hennar hefur falið fyrirtækinu að annast sölu hennar með samningi þar að lútandi, en í honum stendur m.a. „[höfundur] má einungis fela Pk sölu á uppskriftum þeim sem hún/hann gefur út sem sitt eigið hugverk. Pk ber enga ábyrgð komi í ljós misbrestur þar að lútandi s.s. ritstuldur eða annað áþekkt.“