Þyrnirós samfella
Tilboðsverð
Verð
1.050 kr
Fullt verð
1.050 kr
Um samfelluna:
Þyrnirós samfella er yndislega mjúk, létt og ofurkrúttuð. Frábær yfir langerma/stutterma samfellu og sokkabuxur. Það er eitthvað svo sætt við að klæða litlar dömur í svona punterí. Að mati höfundar er Þyrnirós samfella hin fullkomna viðbót í fataskápinn fyrir allar litlar prinsessur.
Þyrnirós samfella er prjónuð neðan frá og upp. Pilsið er prjónað sér og er síðan prjónað saman við búkinn þegar að því er komið.
Stærðir:
0 (0-3) 3-6 (6-9) 9-12 (12-18)mánaða
Garn:
Dale baby ull (50g=165m) eða annað sambærilegt garn
100 (150) 150 (150) 150 (250)gr
Prjónfesta:
27-28L =10 cm á prjóna nr. 3
Prjónar:
2,5 og 3,0
Þessi uppskrift er í umboðssölu hjá Prjónaklúbbnum (Pk) og er því ekki á vegum eða á ábyrgð fyrirtækisins. Höfundur hennar hefur falið fyrirtækinu að annast sölu hennar með samningi þar að lútandi, en í honum stendur m.a. „[höfundur] má einungis fela Pk sölu á uppskriftum þeim sem hún/hann gefur út sem sitt eigið hugverk. Pk ber enga ábyrgð komi í ljós misbrestur þar að lútandi s.s. ritstuldur eða annað áþekkt.“