Svanur - ungbarnahúfa
Tilboðsverð
Verð
950 kr
Fullt verð
650 kr
Sniðið á húfunni er má segja hefðbundið húfusnið. Byrjað er að fitja upp á stroffinu, síðan eru eyrun mótuð og svo er prjónað munstur og að lokum úrtaka í toppnum á húfunni.
Stærðir:
0 - 3 mánaða, (3 – 6 mánaða), 6 – 9 mánaða, (9 – 12 mánaða).
Ummál:
Húfa: 30, (34), 34, (38) cm.
Prjónfesta:
28/10 cm á prjóna númer 3.
Prjónar:
Sokkaprjónar 2.5 mm og 3 mm og litlir hringprjónar 2.5 mm og 3 mm.
Garn:
Soft Merino frá Dale garn 50 gr í allar stærðir. Einnig hægt að nota Lille Lerke frá Dale í sama magni.
Þessi uppskrift er í umboðssölu hjá Prjónaklúbbnum (Pk) og er því ekki á vegum eða á ábyrgð fyrirtækisins. Höfundur hennar hefur falið fyrirtækinu að annast sölu hennar með samningi þar að lútandi, en í honum stendur m.a. „[höfundur] má einungis fela Pk sölu á uppskriftum þeim sem hún/hann gefur út sem sitt eigið hugverk. Pk ber enga ábyrgð komi í ljós misbrestur þar að lútandi s.s. ritstuldur eða annað áþekkt.“