Svanur - opin fullorðinspeysa
Tilboðsverð
Verð
950 kr
Fullt verð
950 kr
Peysan Svanur er prjónuð ofan frá og niður, sem þýðir að byrjað er að fitja upp á hálsmáli. Peysan er prjónuð fram og til baka, slétt á réttu og brugðið á röngu. Munsturbekkur nær yfir berustykkið en annars er hún prjónuð slétt alls staðar nema stroffin. Sniðið á peysunni á að vera frekar laust.
Stærðir:
xsmall, (small), medium, (large), xlarge, (xxlarge).
Ummál:
98, (104), 109, (117), 123, (131), 138.
Prjónfesta:
16/10 cm á prjóna númer 6.
Prjónar:
Sokkaprjónar 5 mm og 6 mm, stuttur hringprjónn (40 cm) 6 mm, langur hringprjónn (80 cm) bæði 5 mm og 6 mm.
Garn:
Kindknitting Úlfur: 400, (450), 500, (550), 600, (650), 650 gr.
Úlfur frá Kindknitting, Léttlopi frá Ístex eða Filcolana Peruvian Highland wool
Þessi uppskrift er í umboðssölu hjá Prjónaklúbbnum (Pk) og er því ekki á vegum eða á ábyrgð fyrirtækisins. Höfundur hennar hefur falið fyrirtækinu að annast sölu hennar með samningi þar að lútandi, en í honum stendur m.a. „[höfundur] má einungis fela Pk sölu á uppskriftum þeim sem hún/hann gefur út sem sitt eigið hugverk. Pk ber enga ábyrgð komi í ljós misbrestur þar að lútandi s.s. ritstuldur eða annað áþekkt.“