Sunna - ungbarnapeysa
Tilboðsverð
Verð
950 kr
Fullt verð
950 kr
Sunna ungbarnapeysa er prjónuð fram og til baka, ofan frá og niður. Laskinn myndar útaukningar
fyrir ermum sem eru prjónaðar þegar búkurinn er tilbúinn. Kanturinn er prjónaður jafnóðum og því
er mjög lítill frágangur þegar peysar er tilbúin.
STÆRÐIR:
0-3 mán, 3-6 mán, 6-12 mán og 12-18 mán
GARN:
Dale Soft Merino eða Dale Baby Ull, 100 (100) 150 (200) gr
PRJÓNFESTA:
28 l / 10 cm á prj. nr. 3
ANNAÐ SEM ÞARF:
Hringprjónn nr 3, 60 cm
Sokkar prjóna nr 3 fyrir ermar (eða 80-100 cm hringprjónn ef magic loop aðferð er notuð)
Tölur, 5-7 stk
4 Prjónamerki
Þessi uppskrift er í umboðssölu hjá Prjónaklúbbnum (Pk) og er því ekki á vegum eða á ábyrgð fyrirtækisins. Höfundur hennar hefur falið fyrirtækinu að annast sölu hennar með samningi þar að lútandi, en í honum stendur m.a. „[höfundur] má einungis fela Pk sölu á uppskriftum þeim sem hún/hann gefur út sem sitt eigið hugverk. Pk ber enga ábyrgð komi í ljós misbrestur þar að lútandi s.s. ritstuldur eða annað áþekkt.“