Sumarblær - sett
Tilboðsverð
Verð
1.600 kr
Fullt verð
1.600 kr
Peysan Sumarblær er prjónuð ofan frá og niður, sem þýðir að fitjað er fyrst upp á hálsmáli. Peysan er prjónuð fram og til baka slétt á réttunni og brugðin á röngunni. Alveg niður að munstur bekknum sem er neðst á peysunni. Hægt er að velja um að hafa peysuna aðeins síðari að aftan eða jafna sídd á henni allri. Sniðið á peysunni á að vera laust en ekki í yfirstærð
Sniðið á húfunni er má segja hefðbundið húfusnið. Byrjað er að fitja upp á stroffinu og svo er prjónað munstur og að lokum úrtaka í toppnum á húfunni.
Stærðir:
Peysa: 6 – 12 mánaða, (1 – 2 ára), 2 – 3 ára, (3 – 4 ára), 4 – 5 ára, (6 ára), 8 ára, (10 ára), 12 ára.
Húfa: 6 – 12 mánaða, 1 – 3 ára, 3 – 6 ára, 6 – 10 ára, 10 – 14 ára
Ummál:
Peysa: 58, (62), 65, (69), 72, (76), 80, (84), 87 cm.
Húfa: 40, (42), 44, (47), 49.
Prjónfesta:
22/10 cm á prjóna númer 4.
Prjónar:
Sokkaprjónar 3.5 mm og 4 mm, stuttur hringprjónn (40 cm) 3.5 mm og 4 mm. Lengri hringprjónn (60 – 80 cm, fer eftir stærð) í bæði 3.5 mm og 4 mm. 40 cm hringprjónar fyrir húfu.
Garn: Dale merino 22
Peysa: 200, (250), 300, (300), 350, (350), 400, (450), 500 g.
Húfa: 100g í allar stærðir
Þessi uppskrift er í umboðssölu hjá Prjónaklúbbnum (Pk) og er því ekki á vegum eða á ábyrgð fyrirtækisins. Höfundur hennar hefur falið fyrirtækinu að annast sölu hennar með samningi þar að lútandi, en í honum stendur m.a. „[höfundur] má einungis fela Pk sölu á uppskriftum þeim sem hún/hann gefur út sem sitt eigið hugverk. Pk ber enga ábyrgð komi í ljós misbrestur þar að lútandi s.s. ritstuldur eða annað áþekkt.“