Sóley, ungbarnasett - Hjálmhúfa
Tilboðsverð
Verð
650 kr
Fullt verð
650 kr
Ég var beðin um að prjóna fallegt heimfararsett fyrir dóttur samstarfskonu minnar. Þær mæðgur höfðu ákveðnar hugmyndir um hvernig það ætti að líta út, en treystu mér til að útfæra og hanna. Ég tók þessari áskorun með gleði og þakklæti, og bjó til sett sem mér sjálfri finnst einstaklega fallegt, stílhreint og tímalaust.
Settið ber nafn barnsins að ósk móðurinnar.
Í settinu eru buxur, peysa og tvær húfur – af því að sumir vilja „venjulega“ húfu, en aðrir vilja kjusu.
Tvenns lags útfærslur eru á mynstrinu þannig að hver og einn getur valið það sem þeim líst betur á.
Húfan er prjónuð í hring með mynsturrönd að framan. Með úrtökum og útaukningum fær húfan þetta fallega og sígilda lag sem alltaf er svo vinsælt og hentugt. Böndin eru svo prjónuð í lokin.
STÆRÐIR
Nýburar / 0-3 mán / 3-6 mán / 6-9 mán
UMMÁL
34, 36, 38, 40 cm
GARN
Dale Baby ull eða það garn sem passar prjónafestunni.
50 gr í öllum stærðum
Athugið að ef annað garn er valið getur það haft áhrif á stærð flíkurinnar auk þess sem magnið gæti breyst.
PRJÓNAR
Hringprjónar, 40 cm # 2,5 og 3,0
Sokkaprjónar # 2,5 og 3,0
PRJÓNAFESTA Í SLÉTTU PRJÓNI
28 L = 10 cm
ANNAÐ SEM ÞARF AÐ HAFA VIÐ HÖNDINA
Prjónamerki
Skæri, nál
Að mati prufuprjónara er þetta í erfiðleikastigi 2 (af 5 mögulegum, þar sem 1 er afar auðvelt, og 5 er mjög erfitt).