Sitji Guðs englar - Peysa
Tilboðsverð
Verð
950 kr
Fullt verð
950 kr
Nýlega færði góður vinur mér þær gleðifréttir að hann ætti von á sínu fyrsta barni.
Um svipað leyti frétti ég að dásamlega stelpuskottið sem passaði ormana mína þegar þau voru lítil, fyrir margt löngu síðan, væri einnig með barni. Því ákvað ég að nú væri kominn tími til að hanna fallegt ungbarnasett sem þetta yndislega unga fólk gæti hugsað sér að klæða nýfæddu börnin sín í.
Í þessu ungbarnasetti eru peysa, romper og húfa.
Peysan er prjónuð ofan frá og niður, fram og tilbaka. Munstur er á ermum og látlaus og einföld flétta niður með boðungum. Tölulisti er prjónaður eftir á.
STÆRÐIR
Nýburar / 0-3 mán / 3-6 mán / 6-9 mán
UMMÁL
46, 47, 49, 51 cm
GARN
Dale Lille lerke eða það garn sem passar prjónafestunni.
100, 100, 100, 150 gr
Athugið að ef annað garn er valið getur það haft áhrif á stærð flíkurinnar auk þess sem magnið gæti breyst.
PRJÓNAR
Hring- og sokkaprjónar # 2,5 og 3,0
PRJÓNAFESTA Í SLÉTTU PRJÓNI
26 L = 10 cm
ANNAÐ SEM ÞARF AÐ HAFA VIÐ HÖNDINA
8-12 prjónamerki
5-8 tölur
Skæri, nál
Að mati prufuprjónara er þetta í erfiðleikastigi 3 (af 5 mögulegum, þar sem 1 er afar auðvelt, og 5 er mjög erfitt).