Ljúfa - smekkbuxur
Tilboðsverð
Verð
950 kr
Fullt verð
950 kr
Buxurnar eru prjónaðar neðan frá og upp. Skálmarnar og bolur eru prjónað í hring en smekkur, afturstykki, bönd og pífur eru prjónuð fram og tilbaka. Ég mæli ekki með mjög þykku garni í þessar buxur þar sem að smekkurinn verður þá alltof þungur með pífurnar.
Þú þarft að vera með tölur og nál til frágangs.
Stærðir: (0-3 mánaða), 3-6 mánaða, (6-9 mánaða), 9-12 mánaða, (1), 2, (3), 4 ára
Prjónfesta: 23 lykkjur og 33 raðir = 10x10 sentímetra í sléttu prjóni á prjóna nr. 3,5
Prjónar: 3 mm sokkaprjónar og 3,5 mm sokkaprjónar og hringprjónar (40 eða 60 sm)
Tillögur af garni: Merino 22 eða Dale lerke eða annað garn sem passar prjónfestunni.
Magn:(150), 150, (150), 200, (200), 250, (250), 300 gröm
Uppskriftin er í umboðssölu hjá Prjónaklúbbnum (Pk) og er því ekki á vegum eða á ábyrgð fyrirtækisins. Höfundur hennar hefur falið fyrirtækinu að annast sölu hennar með samningi þar að lútandi, en í honum stendur m.a. „[höfundur] má einungis fela Pk sölu á uppskriftum þeim sem hún/hann gefur út sem sitt eigið hugverk. Pk ber enga ábyrgð komi í ljós misbrestur þar að lútandi s.s. ritstuldur eða annað áþekkt.“