Krummi - Húfa
Tilboðsverð
Verð
650 kr
Fullt verð
650 kr
Húfan er prjónuð að neðan og upp. Byrjað er á stroffi og svo er munstur prjónað. Úrtaka er svo gerð
samhliða munstrinu. Hægt er að festa dúsk á hana ef vilji er fyrir hendi.
STÆRÐIR:
1-3 ára, 4-8 ára, 9-12 ára, S/M, M/L
GARN:
Úlfur frá Kind garn
50 (50) 50 (110) 100 gr Úlfur frá Kind Knitting - ef notað er annað garn mæli ég með að kaupa aðeins meira af því
PRJÓNFESTA:
17 l / 10 cm á prj. nr. 5
ANNAÐ SEM ÞARF:
- 4,5 mm sokkaprjónar eða langur hringprjónn ef magic loop aðferð er notuð
- 5 mm sokkaprjónar eða langur hringprjónn ef magic loop aðferð er notuð
- 5 prjónamerki
- Kaðlaprjónn
Þessi uppskrift er í umboðssölu hjá Prjónaklúbbnum (Pk) og er því ekki á vegum eða á ábyrgð fyrirtækisins. Höfundur hennar hefur falið fyrirtækinu að annast sölu hennar með samningi þar að lútandi, en í honum stendur m.a. „[höfundur] má einungis fela Pk sölu á uppskriftum þeim sem hún/hann gefur út sem sitt eigið hugverk. Pk ber enga ábyrgð komi í ljós misbrestur þar að lútandi s.s. ritstuldur eða annað áþekkt.“