Sunna María

Hrafnaklukka - peysa

Tilboðsverð Verð 950 kr Fullt verð 950 kr

VSK innifalinn. Sendingarkostnaður reiknast ef við á í pöntunarferli.

Hrafnaklukka er prjónuð ofan frá og niður, sem þýðir að byrjað er að fitja upp á hálsmáli. Peysan er með munstruðu berustykki en annars prjónuð slétt. Hver stærð hefur sína munsturteikningu.

Stærðir:
6 – 12 mánaða, (1 -2 ára), 2 – 3 ára, (3 – 4 ára), 4 – 5 ára, (5 – 6 ára), 8 ára, (10 ára), 12 ára.


Ummál:
58, (62), 66, (70), 75, (79), 83, (87), 92 cm.

Prjónfesta:
19/10 cm á prjóna númer 4,5.

Prjónar:
Sokkaprjónar 4 mm og 4.5 mm, stuttur hringprjónn (40 cm) 4 mm og 4.5 mm. Langur hringprjónn (60 cm) 4 mm og 4.5 mm.


Garn: Kind Merino og fylgiþráður Holst Titicaca.
Garnmagn: Kind Merino: 200, (200), 250, (250), 250, (300), 350, (400), 400g.
Holst Titicaca: 100, (100), 100, (100), 100, (100), 100, (150), 150 g.

Þessi uppskrift er í umboðssölu hjá Prjónaklúbbnum (Pk) og er því ekki á vegum eða á ábyrgð fyrirtækisins. Höfundur hennar hefur falið fyrirtækinu að annast sölu hennar með samningi þar að lútandi, en í honum stendur m.a. „[höfundur]  má einungis fela Pk sölu á uppskriftum þeim sem hún/hann  gefur út sem sitt eigið hugverk. Pk ber enga ábyrgð komi í ljós misbrestur þar að lútandi s.s. ritstuldur eða annað áþekkt.“