Sunna María

Hnjúkaþeyr - sett

Tilboðsverð Verð 1.600 kr Fullt verð 1.600 kr

VSK innifalinn. Sendingarkostnaður reiknast ef við á í pöntunarferli.

Settið inniheldur uppskrift að bæði húfu og peysu.

Sniðið á húfunni er hefðbundið húfusnið. Byrjað er að fitja upp á stroffinu og svo er prjónað munstur og að lokum úrtaka í toppnum á húfunni. 

Peysan Hnjúkaþeyr er prjónuð ofan frá og niður, sem þýðir að fitjað er fyrst upp á hálsmáli. Peysan er prjónuð með munstri framan á berustykkinu og niður bolinn, annars staðar er hún prjónuð slétt. Sniðið á peysunni á að vera laust en ekki í yfirstærð.

Stærðir:
Húfa: 6 – 12 mánaða, 1 – 2 ára, 3 – 6 ára, 8 – 10 ára, 10 – fullorðins stærð.
Peysa: 6 – 12 mánaða, (1 – 2 ára), 2 – 3 ára, (3 – 4 ára), 4 – 5 ára, (6 ára), 8 ára, (10 ára), 12 ára.

Ummál:
Húfa: Ummálið mun teygjast þegar húfan er í notkun! 38, (40), 43, (46), 49 cm.
Peysa: 59, (63), 65, (69), 73, (76), 80, (84), 87 cm.

Prjónfesta:
22/10 cm á prjóna númer 4.

Prjónar:
Húfa: Sokkaprjónar 3 mm, 3.5 mm og 4 mm og litlir hringprjónar 3 mm, 3.5 mm og 4 mm.
Peysa: Sokkaprjónar 3.5 mm og 4 mm, stuttur hringprjónn (40 cm) 3.5 mm og 4
mm. Lengri hringprjónn (60 – 80 cm, fer eftir stærð) í bæði 3.5 mm og 4
mm.


Garn: Dale Merino 22 eða Dale Lerke; 

Magn í húfu: 100 g í allar stærðir.
Magn í peysu: 200, (250), 300, (300), 350, (400), 450, (450), 500 g.

Þessi uppskrift er í umboðssölu hjá Prjónaklúbbnum (Pk) og er því ekki á vegum eða á ábyrgð fyrirtækisins. Höfundur hennar hefur falið fyrirtækinu að annast sölu hennar með samningi þar að lútandi, en í honum stendur m.a. „[höfundur]  má einungis fela Pk sölu á uppskriftum þeim sem hún/hann  gefur út sem sitt eigið hugverk. Pk ber enga ábyrgð komi í ljós misbrestur þar að lútandi s.s. ritstuldur eða annað áþekkt.“