Sunna María

Hnjúkaþeyr - peysa

Tilboðsverð Verð 950 kr Fullt verð 950 kr

VSK innifalinn. Sendingarkostnaður reiknast ef við á í pöntunarferli.

Peysan Hnjúkaþeyr er prjónuð ofan frá og niður, sem þýðir að fitjað er fyrst upp á hálsmáli. Peysan er prjónuð með munstri framan á berustykkinu og niður bolinn, annars staðar er hún prjónuð slétt. Sniðið á peysunni á að vera laust en ekki í yfirstærð.

Stærðir:
6 – 12 mánaða, (1 – 2 ára), 2 – 3 ára, (3 – 4 ára), 4 – 5 ára, (6 ára), 8 ára, (10 ára), 12 ára.


Ummál:
59, (63), 65, (69), 73, (76), 80, (84), 87 cm.

Prjónfesta:
22/10 cm á prjóna númer 4.

Prjónar:
Sokkaprjónar 3.5 mm og 4 mm, stuttur hringprjónn (40 cm) 3.5 mm og 4
mm. Lengri hringprjónn (60 – 80 cm, fer eftir stærð) í bæði 3.5 mm og 4
mm.

Garn: Dale Merino 22 eða Dale Lerke; 200, (250), 300, (300), 350, (400), 450, (450), 500 g.

Þessi uppskrift er í umboðssölu hjá Prjónaklúbbnum (Pk) og er því ekki á vegum eða á ábyrgð fyrirtækisins. Höfundur hennar hefur falið fyrirtækinu að annast sölu hennar með samningi þar að lútandi, en í honum stendur m.a. „[höfundur]  má einungis fela Pk sölu á uppskriftum þeim sem hún/hann  gefur út sem sitt eigið hugverk. Pk ber enga ábyrgð komi í ljós misbrestur þar að lútandi s.s. ritstuldur eða annað áþekkt.“