Sunna María

Haustblær - peysa

Tilboðsverð Verð 950 kr Fullt verð 950 kr

VSK innifalinn. Sendingarkostnaður reiknast ef við á í pöntunarferli.

Peysan Haustblær er prjónuð ofan frá og niður, sem þýðir að byrjað er að fitja upp á hálsmáli. Munstur nær yfir 26 lykkjur á framstykkinu og það byrjar efst fyrir neðan hálsmál og nær alveg niður að stroffinu að neðan.

Stærðir:
6 – 12 mánaða, (1 – 2 ára), 2 – 3 ára, (3 – 4 ára), 5–6ára,(8ára), 10ára og (12 – 14 ára).

Ummál:
62, (66), 71, (73), 77, (82), 88, (93) cm.

Prjónfesta:
18/10 cm á prjóna númer 5.

Prjónar:
Sokkaprjónar 4.5 mm. og 5 mm., stuttur hringprjónn (40 cm) 4.5 mm og 5 mm. og langur hringprjónn (60 cm) bæði 4.5 mm og 5 mm.

Garn: Úlfur frá Kind knitting; 200, 200, 250, 250, 300, 350, 400, 450 g.

Þessi uppskrift er í umboðssölu hjá Prjónaklúbbnum (Pk) og er því ekki á vegum eða á ábyrgð fyrirtækisins. Höfundur hennar hefur falið fyrirtækinu að annast sölu hennar með samningi þar að lútandi, en í honum stendur m.a. „[höfundur]  má einungis fela Pk sölu á uppskriftum þeim sem hún/hann  gefur út sem sitt eigið hugverk. Pk ber enga ábyrgð komi í ljós misbrestur þar að lútandi s.s. ritstuldur eða annað áþekkt.“