GÖNGUR - Peysa
Tilboðsverð
Verð
950 kr
Fullt verð
950 kr
Um peysuna:
Peysan er prjónuð í hring ofanfrá og niður, með rúllukraga, munstri á framstykki og ermum en slétt á baki. Munstrið kallast „Twilled Stripe Stitch“.
Stærðir: 6-12 mán, 1, 2, 3, 4, 5-6, 7-9, 10-12 ára
Garn: Dale Lerke
200, 250, 250, 300, 300, 350, 400, 500 gr.
Einnig má nota hvaða annað garn sem er, sem passar prjónfestunni. Athugið þó að magnið getur breyst ef annað garn er notað.
Prjónfesta: 22 lykkjur á 10 cm í sléttu prjóni.
Að mati prufuprjónara er þetta í erfiðleikastigi 2,5 (af 5 mögulegum, þar sem 1 er afar auðvelt, og 5 er mjög erfitt).
Sú einkunn kemur til af þeirri einbeitingu sem þörf er á þegar mynstrið er lagt niður í upphafi, auk þess sem ekki allir eru vanir því að prjóna peysur ofanfrá og auka út í berustykki í stað þess að taka úr eins og venjan er.