Flóra - barnavettlingar
Tilboðsverð
Verð
650 kr
Fullt verð
650 kr
Sniðið á vettlingunum er þannig að það er ekki klassískur þumall, heldur hliðarþumall. Í minnstu stærðinni er ekki gert ráð fyrir þumli, heldur er vettlingurinn prjónaður eins og ungbarnavettlingur með engum þumli. Aukið út fyrir þumlinum í annarri hverri umferð. Úrtakan efst á vettlingnum er einhvers konar hring úrtaka, en ekki þessi venjulega í hliðunum. Munstrið er kaðlamunstur og lærist fljótt. Það er aðeins öðruvísi en klassískt kaðlamunstur er ætti að vera nokkuð einfalt í framkvæmd.
Stærðir:
6 - 12 mánaða, (1 - 2 ára), 3 – 4 ára, (5 – 7 ára), 8 – 10 ára, (12 – 14 ára).
Prjónfesta:
22/10 cm á prjóna númer 4.
Prjónar:
Sokkaprjónar 3.5 mm og 4 mm.
Garn: Dale Lerke, Kind Merino eða Lang Merino 120.
50, (50), 50, (50), (100), 100g
Þessi uppskrift er í umboðssölu hjá Prjónaklúbbnum (Pk) og er því ekki á vegum eða á ábyrgð fyrirtækisins. Höfundur hennar hefur falið fyrirtækinu að annast sölu hennar með samningi þar að lútandi, en í honum stendur m.a. „[höfundur] má einungis fela Pk sölu á uppskriftum þeim sem hún/hann gefur út sem sitt eigið hugverk. Pk ber enga ábyrgð komi í ljós misbrestur þar að lútandi s.s. ritstuldur eða annað áþekkt.“