Flóra - barnapeysa
Tilboðsverð
Verð
950 kr
Fullt verð
950 kr
Flóra er prjónuð ofan frá og niður, sem þýðir að byrjað er að fitja upp á hálsmáli. Peysan er með köðlum á berustykkinu, en annars prjónuð slétt. Hver stærð hefur sína munsturteikningu.
Stærðir:
6 – 12 mánaða, (1 -2 ára), 2 – 3 ára, (3 – 4 ára), 4 – 5 ára, (6 ára), 8 ára, (10 ára), 12 ára.
Ummál:
58, (65), 67, (72), 74, (78), 80, (83), 86 cm.
Prjónfesta:
22/10 cm á prjóna númer 4.
Prjónar:
Sokkaprjónar 3,5 mm og 4 mm, stuttur hringprjónn (40 cm) 3,5 mm og 4 mm. Langur hringprjónn (60 cm) 3,5 mm og 4 mm.
Garn: Kind Merino, Lang merino 120 eða Dale Lerke.
Garnmagn: 200, (250), 250, (300), 350, (350), 400, (400), 450g.
Þessi uppskrift er í umboðssölu hjá Prjónaklúbbnum (Pk) og er því ekki á vegum eða á ábyrgð fyrirtækisins. Höfundur hennar hefur falið fyrirtækinu að annast sölu hennar með samningi þar að lútandi, en í honum stendur m.a. „[höfundur] má einungis fela Pk sölu á uppskriftum þeim sem hún/hann gefur út sem sitt eigið hugverk. Pk ber enga ábyrgð komi í ljós misbrestur þar að lútandi s.s. ritstuldur eða annað áþekkt.“