Flóra - barnahúfan
Tilboðsverð
Verð
650 kr
Fullt verð
650 kr
Sniðið á húfunni er má segja hefðbundið húfusnið. Byrjað er að fitja upp á eyrunum í minnstu stærðunum en annars á stroffinu á húfunni, svo er prjónað munstur og að lokum úrtaka í toppnum á húfunni. Þegar valin er stærð til að prjóna er gott að skoða vídd sem gefin er upp á húfunni til að meta hvaða stærð er best að prjóna, börn og fullorðnir geta verið með mismunandi höfuðstærð. Góð teygja er í húfunni og gott að hafa það í huga þegar stærð er valin. Prjónfestan sem gefin er upp er bæði 22/10 og 23/10 vegna þess að stærðirnar eru prjónaðar á bæði 3.5 mm prjóna og 4 mm prjóna, stundum þarf að stækka eða minnka prjóna til að ná réttri prjónfestu og það er gott að hafa það i í huga þegar prjónar eru valdir fyrir verkefnið. Stærðirnar eru settar upp þannig að 2 stærðir eru alltaf með sama lykkjufjölda og því mætti segja að stærðirnar væru bara 4, en mis þykkir prjónar eru notaðir í þeim til að ná fleiri stærðum.
Stærðir:
6 mánaða, (12 mánaða), 1 - 2 ára, (3 – 4 ára), 5 – 7 ára, (8 – 10 ára), 12 –14 ára (fullorðins).
Ummál:
37, (40), 42, (44), 45, (47), 49, (51) cm.
Prjónfesta:
22/10 og 23/10 cm á prjóna númer 4.
Prjónar:
Sokkaprjónar 3.5 mm og 4 mm og litlir hringprjónar 3.5 mm og 4 mm.
Garn: Dale Lerke, Kind Merino eða Lang Merino 120.
100g í allar stærðir.
Þessi uppskrift er í umboðssölu hjá Prjónaklúbbnum (Pk) og er því ekki á vegum eða á ábyrgð fyrirtækisins. Höfundur hennar hefur falið fyrirtækinu að annast sölu hennar með samningi þar að lútandi, en í honum stendur m.a. „[höfundur] má einungis fela Pk sölu á uppskriftum þeim sem hún/hann gefur út sem sitt eigið hugverk. Pk ber enga ábyrgð komi í ljós misbrestur þar að lútandi s.s. ritstuldur eða annað áþekkt.“