Emilía - samfella & samfellukjóll
Tilboðsverð
Verð
950 kr
Fullt verð
Samfellan er prjónuð neðan frá og upp. Fyrst eru fram- og bakstykki prjónuð í sitt hvoru lagi og svo sameinuð á einn prjón. Ermar eru prjónaðar sér og svo sameinaðar bol. Úrtaka er gerð á mótum bols og erma.
Pífan eða pilsið er prjónuð í lokin.
Stærðir:
Nýburar / 0-1 mán / 1-3 mán / 3-6 mán / 6-9 mán
Ummál:
36, 41, 45, 49, 52 cm.
Garn:
Sandnes Sunday (50 gr= 235 mtr)
Samfella m.pífu: 100, 100, 100, 100, 150 gr.
Samfellukjóll: 100, 100, 150, 150, 200 gr.
Athugið að ef annað garn er valið getur það haft áhrif á stærð flíkurinnar auk þess sem magnið gæti breyst.
Prjónfesta:
28 lykkjur á 10 cm í sléttu prjóni á prjóna #3,0
Það sem þarf að hafa við höndina:
Hringprjónar, 40 cm # 2,5 og #3,0
Sokkaprjónar # 2,5 & 3,0
Nokkur prjónamerki
4 tölur
Skæri, nál
Að mati prufuprjónara er þetta í erfiðleikastigi 3,5 (af 5 mögulegum, þar sem 1 er afar auðvelt, og 5 er mjög erfitt).