ELMA sett
Tilboðsverð
Verð
2.050 kr
Fullt verð
2.050 kr
Gallinn er prjónaður ofan frá og niður. Fyrst er hálsmálið og berustykkið prjónað fram og til baka. Næst eru svo lykkjur teknar frá fyrir ermar. Síðan er haldið áfram að prjóna bolinn fram og til baka en hann er síðan tengdur í hring þegar kantinum lýkur. Síðan er stykkinu skipt í tvennt og skálmar prjónaðar í hring. Eftir að skálmum er lokið eru ermalykkjur teknar upp og ermarnar prjónaðar í hring.
STÆRÐIR:
0-3 mán, 3-6 mán, 6-12 mán og 12-18 mán
GARN:
Dale Baby Ull eða Sandnes Sunday,
150, 150, 200, 250 g
PRJÓNFESTA:
28 l / 10 cm á prj. nr. 3
ANNAÐ SEM ÞARF:
3 mm sokkaprjónar
3 mm hringprjónn, 60 cm
5-6 tölur
prjónamerki
____________________________________________________________________________________________
ELMA ungbarnahúfa getur verið notuð í stíl við ELMA ungbarnagalla en er líka mjög falleg ein og sér. Hún er prjónuð í hring, neðan frá og upp, með úrtökum og útaukningum sem mynda lögunina á húfunni. Frábært húfu fyrir minnstu krílin.
STÆRÐIR:
0-3 mán, 3-6 mán, 6-12 mán og 12-18 mán
GARN:
Dale Baby Ull eða Sandnes Sunday,
50g
PRJÓNFESTA:
28 l / 10 cm á prj. nr. 3
ANNAÐ SEM ÞARF:
3 mm sokkaprjónar eða langur hringprjónn fyrir magic lopp aðferðina
____________________________________________________________________________________________
Vettlingarnir eru prjónaðir í hring frá stroffi. Enginn þumall er á minnstu tveimur stærðunum.
Sokkarnir eru einnig prjónaðir í hring frá stroffi.
STÆRÐIR:
0-3 mán, 3-6 mán, 6-12 mán og 12-18 mán
GARN:
Dale Baby Ull eða Sandnes Sunday - þessar magntölur eru aðeins til viðmiðunar, myndi alltaf mæla með að eiga 50 gr fyrir vettlingapar og 50 gr fyrir sokkapar:
○ Vettlingar 20 (20) 30 30 gr
○ Sokkar: 30 (30) 40 (40) gr
PRJÓNFESTA:
28 l / 10 cm á prj. nr. 3
ANNAÐ SEM ÞARF:
3 mm sokkaprjónar eða langur hringprjónn fyrir magic lopp aðferðina
Prjónamerki
____________________________________________________________________________________________
Þessi uppskrift er í umboðssölu hjá Prjónaklúbbnum (Pk) og er því ekki á vegum eða á ábyrgð fyrirtækisins. Höfundur hennar hefur falið fyrirtækinu að annast sölu hennar með samningi þar að lútandi, en í honum stendur m.a. „[höfundur] má einungis fela Pk sölu á uppskriftum þeim sem hún/hann gefur út sem sitt eigið hugverk. Pk ber enga ábyrgð komi í ljós misbrestur þar að lútandi s.s. ritstuldur eða annað áþekkt.“