Kind Knitting

Júníana litla - Peysa

Tilboðsverð Verð 650 kr Fullt verð 950 kr

VSK innifalinn. Sendingarkostnaður reiknast ef við á í pöntunarferli.

Um peysuna:

Júníana peysa er prjónuð neðan frá, samsett úr garðaprjóni og klassísku gatamunstri, sem ég útfærði þannig kæmi vel út í berustykki. Vegna þess ég vildi að munstrið myndi njóta sín er laskinn ansi óhefðbundinn, en ekki er tekið úr á ermum fyrrr en í blá lokin. Þetta gefur laskanum skemmtilegt form og gerir berustykkið meira munstrað en ella.

Stærðir: 0-3 mán, 3-6 mán, 6-12 mán 12-18 mán

Garn: Dale Lille Lerke  150, 150, 200, 200-250 gr. 
Einnig má nota hvaða annað garn sem er, sem passar prjónfestunni. Athugið þó að magnið getur breyst ef annað garn er notað.

Prjónfesta: 26 lykkjur á 10 cm í sléttu prjóni.

Að mati prufuprjónara er þetta í erfiðleikastigi 4-4,5 (af 5 mögulegum, þar sem 1 er afar auðvelt, og 5 er mjög erfitt). 
Sú einkunn kemur til af þeirri einbeitingu sem þörf er á þegar berustykkið er prjónað, þar sem úrtaka er ekki eins og venjan er.

Customer Reviews

Based on 1 review
100%
(1)
0%
(0)
0%
(0)
0%
(0)
0%
(0)
N
Nína Hauksdòttir

Júníana litla - Peysa