Kind Garn

Angóra & merino (4126) Rósrauður

Tilboðsverð Verð 3.490 kr Fullt verð 3.490 kr

VSK innifalinn. Sendingarkostnaður reiknast ef við á í pöntunarferli.

Dásamlega mjúkt og drjúgt 3-þráða angóru- og merinóullargarn sem hentar í allskyns flíkur fyrir allan aldur.

Hver dokka er um 50g eða 250m 

INNIHALD
75% merinóull og 25% angóra

PRJÓNFESTA
Sléttprjón: 21L gefa 10cm á prjóna 3-4
Mynsturprjón: 22L gefa 10cm á prjóna 3,5
Tvöfalt garn: 14L gefa 10 cm á prjóna nr. 5-6

Hentar einnig fyrir heklunál nr. 4
Á prjónavél passar að hafa spennu 9-10
Hentar einnig sem ívaf í vefnað.

ÞVOTTALEIÐBEININGAR
Garnið er þvegið og inniheldur því ekki spunaolíu og mun ekki breytast að ráði í þvotti.

Tilbúna flík þarf að handþvo og leggja til þerris.

Garnið er hluti af grænni línu Kind, en við kaupum afganga af lúxusgarni frá verksmiðjum úti í heimi. Við fáum takmarkað magn í hvert sinn og ekki er víst að við fáum sama lit aftur.