Kind Knitting

Júníana litla - Buxur

Tilboðsverð Verð 650 kr Fullt verð 950 kr

VSK innifalinn. Sendingarkostnaður reiknast ef við á í pöntunarferli.

Um buxurnar:

Júníana buxur eru hálfgerðar leggings, samsettar úr garðaprjóni og klassísku gatamunstri.

Skálmarnar eru prjónaðar fram og til baka, en eftir sameiningu í hring (má halda áfram fram og til baka og sauma saman í lokin).

Stærðir: 0-3 mán, 3-6 mán, 6-12 mán 12-18 mán

Garn: Dale Lille Lerke  100, 100-150, 150-200, 200-250 gr. 
Einnig má nota hvaða annað garn sem er, sem passar prjónfestunni. Athugið þó að magnið getur breyst ef annað garn er notað.

Prjónfesta: 26 lykkjur á 10 cm í sléttu prjóni.

Að mati prufuprjónara er þetta í erfiðleikastigi 2,5 (af 5 mögulegum, þar sem 1 er afar auðvelt, og 5 er mjög erfitt). 
Sú einkun kemur til af þeirri einbeitingu sem þörf er á þegar munstrið er sett niður.